Fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum finnist ekki sanngjarnt að kalla aukin útgjöld konu á landsbyggðinni upp á 45 þúsund krónur á mánuði, vegna nýs kílómetragjalds, skattahækkun. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á máli konunnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fundi Alþingis í dag og spurði ráðherra hvort fólk á landsbyggðinni væri ekki venjulegt fólk, sem ríkisstjórnin hefði lofað að auka ekki álögur gagnvart.