Eydís byrjar að fá auglýsingar fyrir meðgönguföt og barnadót, tveimur vikum seinna finnur hún út að hún er ólétt. En hún hefur ekki gúglað neitt um óléttu. Hvernig vita samfélagsmiðlar að hún sé ólétt á undan henni?Gögn frá snjalltækjum og samfélagsmiðlum eru notuð til að búa til nákvæmt persónusnið af hverjum notanda. Upplýsingar um staðsetningu, kauphegðun, tengslanet og jafnvel heilsufar eru greindar og nýttar í auglýsingum. Er síminn þinn að hlusta á þig? Þarf hann þess þegar hann fær nú þegar aragrúa af upplýsingum frá þér?Eftir Cambridge Analytica-hneykslið innleiddi Evrópusambandið strangar persónuverndarreglur með GDPR, sem takmarka aðgang fyrirtækja og stjórnvalda að persónugögnum. Í Bandaríkjunum er löggjöfin mun veikari.