Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Marius Høiby í fjögurra vikna gæsluvarðhald

Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar, hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Frá þessu er greint á vef norska ríkisútvarpsins. Hann var handtekinn í gær grunaður um líkamsárásir, að ógna fólki vopnaður hnífi og að brjóta gegn nálgunarbanni.Að sögn norsku lögreglunnar voru meint brot framin um helgina. Við dómsuppkvaðningu var tekið undir sjónarmið lögreglu að Høiby væri líklegur til að brjóta af sér aftur væri hann frjáls ferða sinna.Verjandi Høibys segir að gæsluvarðhaldsúrskurðinum verði áfrýjað.Høiby verður dreginn fyrir dóm á morgun þegar réttarhöld hefjast yfir honum fyrir fjölda brota, þar á meðal heimilisofbeldi og nauðganir. Ákæruliðirnir eru alls 38 og hann hefur neitað sök í þeim alvarlegustu.NRK hefur eftir verjanda Høibys að hann kvíði fyrir réttar
Marius Høiby í fjögurra vikna gæsluvarðhald

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta