Kröftugur sólblossi varð í nótt. Hann var sá þriðji öflugasti í hinni svokölluðu sólblettasveiflu, sem er 11 ára langt virknitímabil sólarinnar. Blossinn var af svonefndri X-stærðargráðu, þeirri stærstu. Þetta segir Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari.„Sólblossar verða í kringum virk svæði á sólinni sem heita sólblettir. Þessa dagana er alveg feiknastórt sólblettasvæði sem sést jafnvel með berum augum í gegnum sólmyrkvagleraugu. Ef fólk á slík þá er um að gera að reyna að gjóa augunum eftir þeim. Það lítur svolítið út eins og sólin sé með freknur,“ segir Sævar. BLOSSAR GETA TRUFLAÐ FJARSKIPTI Stórir blossar eins og sá sem varð í nótt geta haft talsverð áhrif á jörðu niðri. Geislunar- og segulstormar sem þeim fylgja geta truflað fjarskipti.„Þar sem þetta gerðist þegar var nótt á Íslandi