Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum.