Hafnarstjórn Hornafjarðar fagnar því að í fyrsta sinn verði samið til lengri tíma um dýpkun á Grynnslunum eða innsiglingunni inn til Hornafjarðar. Sandrif myndast þar í sífellu og getur valdið útgerðinni vandræðum. FJÖRÐURINN Á BAK VIÐ SANDRIFIN Landslagið á Hornafirði er sérstakt og sandrif sem kallast Austurfjörur og Suðurfjörur nánast loka firðinum. Á milli þeirra þurfa skipin að skjóta sér inn um þrönga og grunna innsiglinguna.Jöklarnir sem gnæfa yfir mylja bergið sem skolast til sjávar og því er mikill sandur á ferðinni úti fyrir. Ekki bætir úr skák að landið rís vegna minnkandi jökulfargs. KOMAST EKKI INN OG ÚT MEÐ STÆRRI SKIPIN OG SKIP HAFA TEKIÐ NIÐUR Skinney-Þinganes rekur stórútgerð á Hornafirði en hefur búið við að geta stundum ekki siglt skipum til hafnar og óvíst hvort o