Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vilja einfalda greiðslur ríkisins til flokkanna

Rík ástæða er til að einfalda fyrirkomulag og framkvæmd á greiðslum ríkissjóðs til stjórnmálaflokka. Þetta er mat Ríkisendurskoðunar eftir að hafa farið yfir viðbrögð fjármála- og efnahagsráðuneytisins við því að ríkisstyrkir voru greiddir út óháð því hvort flokkar uppfylltu öll skilyrði eða ekki.Kveikjan að því voru fréttir, fyrst í Morgunblaðinu, um að Flokkur fólksins hefði fengið greidd framlög úr ríkissjóði þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði um að vera skráður stjórnmálaflokkur hjá Skattinum. Síðar kom í ljós að slíkt hafði til skemmri tíma átt við um fleiri.Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemdir við viðbrögð ráðuneytisins við upplýsingum um að framlög hefðu verið greidd áður en flokkar uppfylltu skilyrði. Þar er meðal annars vísað til þess að ráðuneytið óskaði álits ríkislögmann
Vilja einfalda greiðslur ríkisins til flokkanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta