Konu sem flutt var á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í íbúð hennar í Reykjanesbæ í janúar er enn haldið sofandi. Rannsókn á eldsupptökum er á lokastigi, að sögn Jóns Halldórs Sigurðssonar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.Ekki sé hægt að segja til um eldsupptök en ekkert bendi til íkveikju.Eldurinn kviknaði í íbúð á jarðhæð fjölbýlishúss við Vatnsholt og konan var föst þar inni. Líklegt þykir að eldurinn hafi kviknað í stofunni.Reykkafarar fundu hana fljótt og hún var flutt á sjúkrahús í Reykjavík. Sjö hundar sem konan átti drápust.Lögreglan skilar gögnum til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem skilar síðar niðurstöðu sinni.