Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Høiby handtekinn fyrir líkamsárás og farið fram á gæsluvarðhald

Lögreglan í Ósló, höfuðborg Noregs, fór þess á leit við dómara í morgun að Marius Borg Høiby yrði úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann var handtekinn í gær grunaður um líkamsárásir, að ógna fólki vopnaður hnífi og að brjóta gegn nálgunarbanni.Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.Høiby á að mæta fyrir dóm á morgun þegar réttað er yfir honum vegna fjölda brota sem hann hefur verið ákærður fyrir. Ákæruliðirnir eru 38 talsins, þar á meðal fyrir heimilisofbeldi og nauðganir. Hann hefur neitað sök í alvarlegustu ákæruliðunum.Høiby er sonur Mette-Marit krónprinsessu og stjúpsonur Hákonar krónprins. Þau tilkynntu á dögunum að þau yrðu ekki viðstödd réttarhöldin. Hákon sagði þá að fjölskyldan hefði hugsað mikið til þolenda og sagðist vita að mörg þeirra ættu erfitt.Dómstóll tekur afstöð
Høiby handtekinn fyrir líkamsárás og farið fram á gæsluvarðhald

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta