Landamærastöðin við borgina Rafah syðst á Gaza var opnuð í morgun. Stöðin er á landamærum Gaza og Egyptalands og er sú eina sem tengir Gaza við umheiminn. Aðrar landamærastöðvar liggja að Ísrael.Rafah-landamærastöðin hefur verið á valdi Ísraelshers síðan í maí 2024. Hún var opnuð í skamman tíma á síðasta ári en hefur að mestu verið lokuð síðan Ísraelar náðu henni á sitt vald.Vegna vopnahléssamkomulags Hamas og Ísraelsstjórnar frá því í fyrra verður stöðin opnuð en aðeins mjög takmarkað. Aðeins fimmtíu manns verður hleypt í hvora átt fyrstu dagana, að því er fram kemur í egypskum miðlum.Stöðin var opnuð að hluta í gær en ekkert fólk fór þar um. Nú verður það hins vegar heimilt.„Rafah-landamærastöðin er líflína,“ segir Mohammed Nassir við AFP. Hann missti fótinn í árás Ísraelshers skömmu eft