Joanna Rubinstein, yfirmaður flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Svíþjóð, sagði af sér eftir að í ljós kom að hún hefði heimsótt einkaeyju Jeffreys Epstein, bandaríska kynferðisbrotamannsins. Hún segist hafa vitað af brotum Epstein en ekki umfangi þeirra.