Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrsti mánuðurinn án mannskæðrar skotárásar síðan 2018

Nýliðinn janúar er fyrsti mánuðurinn í nær átta ár þar sem enginn var skotinn til bana í Svíþjóð. Frá þessu greinir sænska ríkissjónvarpið, sem hefur tekið saman gögn um skotárásir í Svíþjóð frá 2018.Sænska lögreglan var í þrígang kölluð til vegna skotárásar í síðasta mánuði, tvisvar í Stokkhólmi og einu sinni í Malmö. Einn særðist í Malmö. Karlmaður á sextugsaldri særðist alvarlega í skotárás 21. janúar og annar var handtekinn, grunaður um verknaðinn.Síðasti heili mánuður án mannskæðrar skotárásar í Svíþjóð var mars 2018. Síðan þá hafa verið framdar að minnsta kosti 2.600 skotárásir í landinu. 380 hafa verið skotnir til bana og rúmlega 820 særðir.Flestar skotárásir síðustu átta árin voru framdar í suðurhluta Svíþjóðar, í Gautaborg og Stokkhólmi. Töluverðan hluta þeirra mátti rekja til ski
Fyrsti mánuðurinn án mannskæðrar skotárásar síðan 2018

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta