Taylor Rehmet, frambjóðandi Demókrataflokksins til öldungadeildarsætis í ríkisþingi Texas, verkalýðsleiðtogi og uppgjafarhermaður, vann mjög svo óvæntan sigur í kosningum á laugardaginn. Úrslitin þykja líkleg til að valda áhyggjum meðal leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir þingkosningarnar í nóvember.