Þýskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að smygla nær 53 kílóum af hassi til landsins. Maðurinn fór með efnin frá Spáni til Danmerkur og þaðan með Norrænu til Íslands, að því er fram kemur í ákæru. Maðurinn var kominn á Akureyri þegar hann var handtekinn 13. nóvember. Hassinu var komið fyrir í sílsum bílsins og í leynihólfi sem hafði verið útbúið milli vélar- og farþegarýmis. Héraðssaksóknari ákærði manninn fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þetta var önnur tveggja stórra smygltilrauna sem lögregla kom upp um í nóvember.