Bankarnir eru ekki samstíga í spám sínum fyrir stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar á miðvikudag. Mikil aukning verðbólgu setur mark sitt á spárnar. Á fimmtudag var ný verðbólgumæling Hagstofunnar birt. Ársverðbólga mældist 5,2% í janúar og hefur ekki verið meiri frá því í september 2024.Stýrivextir eru helsta tól Seðlabankans til að hafa áhrif á verðbólgu. Með hærri vöxtum er líklegra að fólk og fyrirtæki haldi að sér höndum og að eftirspurn í hagkerfinu minnki sem ætti að draga úr verðbólgu. Stýrivextir lækkuðu úr 7,5% í 7,25% í nóvember. Þeir hafa farið lækkandi á síðustu misserum en þeir voru 9,25% haustið 2024. EKKI TEKIST AÐ DRAGA ÚR VERÐBÓLGUVÆNTINGUM Landsbankinn spáir því að vextir hækki á miðvikudag um 0,25 prósentustig. Ástæðan er aukning verðbólgu umfram væntingar í janúa