Bad Bunny, Lady Gaga, Kendrick Lamar, Lola Young og Olivia Dean voru meðal þeirra sigursælustu á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í nótt. Laufey Lín Jónsdóttir nældi sér jafnframt í sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötuna A Matter of Time. Mótmæli gegn ICE, innflytjenda- og tollaeftirliti Bandaríkjanna, voru fyrirferðarmikil á hátíðinni þar sem margir þeirra listamanna sem viðstaddir voru nýttu þakkarræður sínar, viðtöl eða báru barmmerki í mótmælaskyni gegn aðgerðum stjórnvalda.