Brandari sem Trevor Noah, kynnir Grammy-verðlaunahátíðarinnar, sagði í gær fór öfugt ofan í Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sem hótar að fara í mál við kynninn.Þegar Noah var búinn að óska Billie Eilish til hamingju með að hlotnast heiðurinn lag ársins fyrir lagið Wildflower sagði hann að þetta væru verðlaun sem allir listamenn vildu hljóta, næstum því jafn mikið og Trump vildi eignast Grænland.„Sem er rökrétt því að Epstein gengnum þarf hann nýja eyju þar sem hann getur hangið með Bill Clinton.“Noah vísaði þar til kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins sem átti í miklum samskiptum við ríkt, frægt og valdamikið fólk. Þrjár milljónir nýrra skjala voru birtar fyrir helgi. Trump sagðist ekki geta svarað fyrir Clinton en sjálfur hefði hann aldrei komið á eyju Epsteins né verið nokkurs st