Þær Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónlistarkona, og Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona hafa vitað af hvor annarri um langa hríð en kynntust formlega við gerð sjónvarpsþáttanna Hildur sem frumsýndir voru á Sjónvarpi Símans í liðinni viku.Ebba Katrín kynntist þó verkum Margrétar miklu fyrr því hún var aðeins níu ára þegar hún sá kvikmyndina Regínu í fyrsta sinn í bíói. „Þar sat ég agndofa yfir þessari mynd, svo fór ég beint heim og endurlék senurnar.“ Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við þær stöllur í Segðu mér á Rás 1.Margrét segist ekki hafa gert sér grein fyrir hve vinsæl Regína myndi verða. Þetta var hennar fyrsta kvikmyndahandrit sem hún skrifaði til að geta samið tónlistina fyrir. „Enda var upplifunin ekkert endilega að hún hefði slegið í gegn,“ segir Margrét. „Það kom sæ