Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hlaut í kvöld sín önnur Grammy-verðlaun á Grammy verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Verðlaunin fékk hún fyrir plötu sína A Matter of Time en platan var tilnefnd sem besta hefðbundna poppplata ársins.Tónlistarmaðurinn Benito Ocasio, öðru nafni Bad Bunny, skráði sig í sögubækur hátíðarinnar þegar hann fékk verðlaun fyrir plötu ársins, fyrir plötuna, Debi Tirar Mas Fotos. Þetta er í fyrsta sinn sem plata sungin á spænsku vinnur verðlaun í þessum flokki. Hann fékk einnig tvenn önnur verðlaun á hátíðinni.Rapparinn Kendrick Lamar hlaut alls fimm Grammy-verðlaun en hann var tilnefndur til níu verðlauna. Þá fékk Lady Gaga tvenn verðlaun.Billie Eilish or bróðir hennar Finneas O'Connell fengu Grammy-verðlaun fyrir lag ársins fyr