Forsetaframbjóðandinn Laura Fernandez á kjörstað 1. febrúar 2026.AP / Carlos BorbonFyrstu niðurstöður forsetakosninganna í Kosta-Ríka sem fram fóru í gær benda til að Laura Fernandez muni sigra með miklum yfirburðum. Fernandez er komin með ríflega 53,01% prósent greiddra atkvæða þegar búið er að telja atkvæði frá 31 kjörstað. Alls voru 20 einstaklingar í framboði. Ef frambjóðandi fær 40% atkvæða þarf ekki að fara í aðra umferð kosninganna.Fernandez er fulltrúi hægriflokksins PPSO. Það er ekki hvað síst hörð afstaða Fernandez gegn glæpum sem er talin skýra vinsældir hennar. Kosta Ríka hefur lengi þótt vera eitt öruggasta land Mið-Ameríku. Glæpir hafa þó aukist mikið í landinu á síðustu árum.