Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Réttarhöldin yfir Maríusi hefjast á þriðjudag

Réttarhöldin yfir Maríus Borg Høiby, syni Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefjast á þriðjudag í héraðsdómi Oslóar.Ákæran á hendur Mariusi er í yfir 30 liðum. Hann er meðal annars ákærður fyrir fjórar nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líflátshótanir og fjölda annarra brota. Verði hann dæmdur sekur á hann yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsisdóm. Maríus hefur neitað alvarlegustu kærunum.Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa hafa sagt að þau verði ekki viðstödd réttarhöldin því þau séu á leið í frí. Krónprinsinn tjáði sig um málið við fjölmiðla 28. janúar og sagði að fjölskyldan hefði hugsað mikið til þolenda í málinu. „Ég veit að mörg ykkar eiga erfitt núna,“ sagði hann og talaði beint til þeirra. Jafnframt sagðist hann sannfærður um að réttarhöldin færu fram á löglegan og sanng
Réttarhöldin yfir Maríusi hefjast á þriðjudag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta