Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social í kvöld að Kennedy-miðstöðinni verði lokað vegna endurbóta í sumar. Á því ári sem Trump hefur verið forseti hefur hann gagnrýnt miðstöðina og bætt einnig nafni sínu við hana, svo nú kallast miðstöðin Trump-Kennedy miðstöðin.„Ég hef ákveðið að fljótlegasta leiðin til að auka árangur, fegurð og mikilfengleika Trump-Kennedy miðstöðvarinnar sé að blása af alla viðburði í um það bil tvö ár,“ sagði Trump í færslu sinni á Truth Social. Hann sagði að stjórn miðstöðvarinnar ætti eftir að samþykkja þessa tillögu hans, en hann er formaður stjórnarinnar og valdi sjálfur stjórnarfólk.Kennedy-miðstöðin var opnuð 1971 til minnis um John F. Kennedy, fyrrum forseta Bandaríkjanna. Síðan Donald Trump skipti um stjórnarmeðlimi