Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Laufey vann Grammy-verðlaun

Laufey Lín Jónsdóttir tekur við verðlaunum sínum á Grammyverðlaunahátíðinni.AP/Invision / Chris PizzelloTónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir vann rétt í þessu sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötu sína A Matter of Time sem kom út í fyrra. Platan var tilnefnd sem besta hefðbundna poppplata ársins, rétt eins og plata hennar Bewitched sem hún fékk Grammy-verðlaun fyrir á síðasta ári. Laufey skákaði að þessu sinni heimsþekktu tónlistarfólki ref fyrir rass, þeim Barböru Streisand, Elthon John, Lady Gaga, Jennifer Hudson, Lailu Biali og Brandi Carlile sem einnig voru tilnefnd í sama flokki og Laufey.
Laufey vann Grammy-verðlaun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta