Fyrstu þríhliða viðræður milli samninganefnda Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna fóru fram í Abu Dhabi 23. og 24. janúar 2026.EPA / UAE Presidential Court /HANDOUT HANDOUTNæstu þríhliða viðræður milli sendinefnda Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna hefjast á miðvikudaginn í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta kom fram í færslu Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta á samfélagsmiðlunum X í gær. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Rússlandi hafa ekki staðfest þessar nýju dagsetningar viðræðnanna.Samninganefndir ríkjanna hittust fyrst fyrir rúmri viku í Abu Dhabi og næstu þríhliða viðræður áttu að hefjast í gær. Ekki er ljóst af hverju þeim var seinkað. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna, fundaði með Kirill Dmitriev, einum helsta ráðgjafa Vladímírs Pútín Rússlandsforseta,