Persónuupplýsingar yfir 4.500 starfsmanna sem koma að aðgerðum gegn ólöglegum innflytjendum í Bandaríkjunum hafa verið birtar á vefsíðu sem nefnist Icelist Wiki. Vefsíðan er einkaframtak Írans Dominick Skinners sem búsettur er í Hollandi. Það vekur athygli að vefsíða Skinners er hýst á Íslandi, en lén hennar er wiki.icelist.is.Mbl.is greindi frá vefsíðunni fyrr í kvöld. BERA GRÍMUR TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR AÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR FARI Á NETIÐ Á vefsíðu Icelist Wiki segir að vefurinn sé staðfestur gagngrunnur yfir aðgerðir innflytjendaeftirlitsins í Bandaríkjunum.„Hér er haldið utan um uppákomur, stofnanir, einstaklinga, aðstöðu, bifreiðar og lagayfirvöld sem koma að aðgerðunum,“ stendur á vefsíðunni. Þar segir að vefsíðan sé ætluð fréttamönnum, rannsakendum, talsmönnum og almenningi.Fulltr