Myndin fjallar um forsetafrúna á meðan hún undirbýr aðra embættistöku eiginmanns síns, Donalds Trumps. Myndin var frumsýnd þrítugasta janúar og hefur vakið sterk viðbrögð kvikmyndagagnrýnenda. Á IMDB hefur myndin fengið 1,1 af 10. Á vefsíðunni Rotten Tomatoes hlaut myndin 10 prósent af 100.Melania sjálf var einn framleiðandi myndarinnar en Jeff Bezos, forstjóri Amazon, keypti réttindin að myndinni fyrir 40 milljónir bandaríkjadala, nær þrefalt hærra en næsthæsta tilboðið í myndina. Er þetta því dýrasta heimildarmynd allra tíma. MIÐASALA GEKK BETUR EN Á HORFÐIST Sjötíu prósent af kaupverðinu fór beint til forsetafrúarinnar sjálfrar, eða 3,4 milljarðar íslenskra króna, og að auki lagði Amazon 35 milljónir dala í markaðssetningu myndarinnar. Áætlaðar tekjur fyrir frumsýningarhelgi myndarin