Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvetja fólk til að „gefa íslensku séns“

Íslendingar eru of gjarnir á að tala ekki íslensku við þá sem eru að læra tungumálið segja þau sem standa að verkefninu Gefum íslensku séns á Ísafirði. Þau vilja fá almenning með sér í lið við kennslu tungumálsins.Átakinu var hrint af stað fyrir um tuttugu árum. Það gengur út á að hvetja fólk til að gefa íslenskunni séns í samskiptum. Félag var stofnað utan um verkefnið á dögunum sem einstaklingar og stofnanir geta sótt um aðild að.„Maður þarf í fyrsta lagi að tala við fólkið svo það getur æft sig á íslensku. Í öðru lagi kannski að gefa aðeins afslátt af hraða og af málsnið. Aðlaga mál sitt aðeins að þeim sem er að læra og talar tungumálið ófullkomið,“ segir Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.
Hvetja fólk til að „gefa íslensku séns“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta