Almennir borgarar hafa verið drepnir og tugir þúsunda neyðst til að leggja á flótta undan árásum á svæði undir stjórn Kúrda í Sýrlandi síðustu vikur. Kúrdar hér á landi vilja að íslensk stjórnvöld fordæmi árásirnar. Þeir komu saman við Hallgrímskirkju í dag til að vekja athygli á stöðunni.Salah Karim, fulltrúi kúrdíska samfélagsins á Íslandi, segir Kúrda í Rojava í Sýrlandi undir linnulausum árásum stjórnarhersins og málaliða sem komi til Sýrlands í gegnum Tyrkland.Stjórnin sem tók við eftir að Bashar al-Assad var steypt af stóli fyrir rúmu ári hefur heitið því að sameina undir sig mismunandi hópa landsmanna. Framkvæmd samkomulags Lýðræðissveita Kúrda við stjórn Ahmeds al-Sharaa hefur tafist og átök brutust út um áramót.„Við erum að mótmæla til að ríkisstjórn Íslands beiti sér fyrir því að