Um 350 börn eru í meðferð við offitu í Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og þeim fjölgar ár frá ári. Biðtími hefur styst eftir að starfsfólki var fjölgað og er nú um átta mánuðir. Og þar eru börn á ýmsum aldri.„Við erum núna með um 350 börn í meðferð á hverjum tíma og þeim hefur fjölgað eftir að við stækkuðum teymið. Við erum að taka inn um 100 á hverju ári núna,“ segir Tryggvi Helgason barnalæknir í Heilsuskólanum. „Börnin eru frá 2ja ára upp í 18, meðalaldurinn er í kringum 12 ára.“ 20-30% FÁ ÞYNGDARSTJÓRNUNARLYF Og ástæðurnar eru ýmsar, segir Tryggvi. Meðal annars meðfæddir sjúkdómar.Meðferð barnanna gengur út á hverju þau eða foreldrar þeirra geta breytt og sum fá þyngdarstjórnunarlyf.„Við erum kannski með 20-30% af krökkunum sem eru í heilsuskólanum á þessum lyfjum. Við erum kanns