Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Miklu erfiðara að vera á hliðarlínunni en heima hjá sér

„Það er miklu erfiðara að vera þarna á hliðarlínunni en að vera heima hjá sér. Miklu erfiðara,“ segir Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari. Alls þjálfaði Guðmundur íslenska handboltalandsliðið í 13 ár.„Þetta er skrítin tilfinning fyrir mig. 2010 stóð ég í sömu sporum og Snorri og Arnór eru í dag að stýra liðinu í bronsleik í EM í Austurríki á móti Pólverjum. Það koma yfir mig minningar frá því,“ segir Guðmundur.„Minningar um þessa baráttu og hvað það er erfitt að koma svona langt með liðið. Að komast í undanúrslit er stór áfangi,“ segir Guðmundur.Víða safnaðist fólk saman til að horfa á leikinn, til dæmis í Smáralind.„Þetta eru strákarnir okkar. Sama hvað, þeir eru alltaf okkar sko, þótt leikirnir fari ekki eins og við viljum,“ segir Kristbjörg Jónsdóttir.
Miklu erfiðara að vera á hliðarlínunni en heima hjá sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta