Þrír og hálfur mánuður eru í sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Fimm af átta framboðum sem að náðu inn manni í síðustu borgarstjórnarkosningum eru búnir að velja sér oddvita.Hildur Björnsdóttir verður áfram oddviti Sjálfstæðisflokksins sem fékk flest atkvæði í kosningunum 2022. Framboðslistinn verður birtur fyrir febrúarlok.Samfylkingin, sem fékk næstflest atkvæði síðast, er búin að kjósa nýjan leiðtoga, Pétur Marteinsson. Endanlegur listi verður kynntur í síðasta lagi 28. febrúar.Einar Þorsteinsson verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Framboðslistinn verður kynntur á kjördæmisþingi á laugardaginn.Píratar halda prófkjör um mánaðamótin. Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti þeirra verður ekki með því hún er komin í Samfylkinguna en náði ekki bindandi kosningu í efstu sætin í p