Grammy-verðlaunin verða veitt í nótt og er íslenska tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir meðal tilnefndra. Augu margra beinast þó að tónlistarmanninum Bad Bunny, sem gæti skráð sig í sögubækurnar fái hann verðlaun fyrir bestu plötu ársins. HLÝTUR TILNEFNINGU ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ Tónlistarkonan Laufey Lín er tilnefnd fyrir bestu hefðbundnu poppplötu ársins, fyrir plötuna A Matter of Time sem kom út í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem Laufey hlýtur tilnefningu, en hún vann til verðlauna í sama flokki í fyrra fyrir plötuna Bewitched.Laufey er í góðum hópi stórstjarna í flokknum, en meðal þeirra sem eru tilnefnd eru Barbra Streisand, Elton John og Lady Gaga.Laufey hefur notið gríðarlegra vinsælda víða um heim. Hún hefur fengið vel á fimmta milljarð spilana á heimsvísu og er með á þriðja tug