Síðasta ár var eitt það erfiðasta í ullarvinnslu í áraraðir, segir framkvæmdastjóri Ístex. Fyrirtækið skuldar bændum enn rúmar hundrað milljónir króna, fyrir ull sem þeir lögðu inn á síðasta ári.„Við erum byrjaðir að greiða niður þær skuldir og við greiddum 90 milljónir upp í um 200 milljóna króna skuld nú í janúar en svo mun hitt koma hægt og sígandi. En þetta ræðst eingöngu af því hvernig okkur tekst að selja,“ segir Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex.Ullin er dýrmæt aukaafurð fyrir sauðfjárbændur, sem fá greitt frá Ístex fyrir innsend kíló af ull. Þær greiðslur lækkuðu um í kring um 30 prósent milli ára og á síðasta ári var ein tegund ullar verðlögð á núll krónur kílóið.Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í Presthvammi í Aðaldal segir tekjur af ullinni telja um tíu prósent af heil