Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Á yfir höfði sér kæru vegna fjölda umferðarlagabrota

Karlmaður sem handtekinn var eftir langa eftirför lögreglu við Miklubraut á sjöunda tímanum í gærkvöldi á yfir höfði sér kæru vegna fjölda umferðarlagabrota.Maðurinn ók stolnum bíl og stöðvaði hann ekki fyrr en eftir að hafa ekið yfir naglamottu lögreglu. Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir manninn eiga yfir höfði sér kæru vegna hraðaaksturs, aka yfir rauð ljós og að keyra utan í bíla, þar á meðal lögreglubíl.Töluverður viðbúnaður var við handtökuna. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru allt að átta lögreglubílar á vettvangi.Mynd af vettvangi.RÚV
Á yfir höfði sér kæru vegna fjölda umferðarlagabrota

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta