„Það er gert grín að þessu víðar, og það er skiljanlegt ef maður veit ekkert um þetta,“ segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, um hundasleðaherdeildina Sirius, sem danski herinn starfrækir í þjóðgarði Grænlands. Hundasleðaherdeildin hefur verið í fréttum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr vörnum Dana á Grænlandi, og sagði þá hafa bætt einum hundasleða við varnir sínar.Bjarki var í herdeildinni, sem er ekki ætlað að standa í bardögum heldur verja fullveldi Grænlands og Danmerkur, í um 30 mánuði. Hann sagði frá þeirri reynslu á Morgunvaktinni á Rás 1 fyrr í vikunni.Ströng inntökuskilyrði eru í Sirius, enda er dvölin bæði andleg og líkamleg þrekraun, og erfitt að komast þar að. Tólf hermenn eru þar í einu á sex hundasleðum. Eingöngu ungi