Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fær Laufey Grammy-verðlaun í kvöld?

Margir Íslendingar munu eflaust fylgjast grannt með Grammy-verðlaununum í nótt og ekki síður þar sem tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er tilnefnd annað árið í röð fyrir bestu hefðbundnu poppplötu ársins. Í þetta sinn er hún tilnefnd fyrir plötuna A Matter of Time en hún hlaut verðlaunin í sama flokki í fyrra fyrir plötuna Bewitched. Meðal annarra sem tilnefndir eru í sama flokki í kvöld eru Elton John og Lady Gaga.Það er þó til ýmiss að hlakka í kvöld því Grammy-verðlaunin eru eitt stærsta kvöld í heimi tónlistarbransans og sögulegir atburðir gætu verið á næsta leiti. Athöfnin fer fram í Los Angeles í Bandaríkjunum og mun sjónvarpsmaðurinn Trevor Noah kynna sjötta árið í röð. Eitt er þó víst og það er að tónlistaratriðin verða ekki af verri kantinum. HVERJIR KOMA FRAM? Tónlistarfólk
Fær Laufey Grammy-verðlaun í kvöld?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta