Náttúrhamfaratryggingar Íslands hefur undanfarið unnið að nánari skoðun á 47 lóðum í Grindavík sem liggja á - eða hjá - sprungum. Talin var þörf á jarðkönnun þar sem grafið var með gröfu að sprungunum til að meta áhrifin á húsin sem þar standa.„Það eru eitthvað á milli 10 og 12 húseignir sem viðgerðir væru það flóknar eða dýrar að það svaraði ekki kostnaði að fara í þær. Það er sirka sá fjöldi af altjónshúsum sem kom í ljós við þessar rannsóknir“ segir Jón Örvar Bjarnason, sviðsstjóri vátryggingasviðs Náttúruhamfaratrygginga.Með þessum húsum eru því altjónshúsin orðin rúmlega 70.„Heildargreiðsla bóta er núna komin í rúmlega 10 milljarða. Langflest þessara altjónsmála og reyndar langflest tjónamálin eru uppgerð,“ segir Jón Örvar.„En það eru nokkur mál sem eru enn þá í úrvinnslu hjá okkur þa