Umdæmisdómari í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að hinn fimm ára gamli Liam Conejo Ramos verði látinn laus úr haldi tolla- og innflytjendaeftirliti Bandaríkjanna, ICE, í Texas, ásamt föður sínum. Hann sagði aðgerðirnar illa ígrundaðar.Handtaka Liams, sem myndaður var með bláan kanínulaga hatt og köngulóarmannsbakpoka í innkeyrslunni að heimili sínu í Minneapolis, hefur vakið mikla reiði á samfélagsmiðlum.Feðgarnir, sem eru flóttamenn frá Ekvador, voru á leið heim frá leikskóla drengsins þegar ICE-liðar handtóku þá við heimili þeirra 20. janúar. ICE sagðist ekki hafa beint aðgerðunum gegn barninu heldur föður hans, sem hafi yfirgefið son sinn þegar þeir nálguðust þá. FJÓRÐA BARNIÐ ÚR SAMA HVERFINU SEM HANDTEKIÐ ER AF ICE Á TVEIMUR VIKUM Í gær samþykkti Fred Biery, umdæmisdómari, neyðarbe