Listamenn úr Myndlistarfélag Árnessýslu (MFÁ) standa saman að styrktarviðburði til stuðnings Hinriki Sjørup, 10 ára dreng frá Selfossi, sem glímir við blóðkrabbamein. Hinrik er nú staddur í Svíþjóð ásamt foreldrum sínum í áframhaldandi meðferð, þar á meðal undirbúningi fyrir beinmergsskipti. Söfnunin fer fram í dag, 1. febrúar.