Ísbirnir á Svalbarða eru feitari og heilbrigðari en áður, þrátt fyrir að hafís þar hafi rýrnað. Vísindamenn telja að birnirnir hafi leitað upp á land eftir æti og þar hafi þeir komist í fituríkari fæðu en seli sem alla jafna eru uppistaðan í æti þeirra.Hafís er afar mikilvægur fyrir ísbirni. Af honum leggja þeir til atlögu gegn selum í sjónum. Með hlýnandi loftslagi hefur hafís bráðnað og þar með hafa möguleikar ísbjarna til fæðuöflunar úr sjó minnkað.Af ísbjörnum á eyjaklasanum Svalbarða, sem er norðan við Noreg og tilheyrir Noregi, hafa borist óvæntar fréttir; þeir eru þyngri en áður.Því feitari sem ísbirnir eru, því betra, segir vísindamaðurinn Jon Aars í samtali við BBC, breska ríkisútvarpið. Frekar hafi verið búist við því að birnirnir myndu léttast vegna loftslagsbreytinga.Vísindamen