Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dmitriev og Witkoff funduðu degi fyrir ráðgerðar þríhliða viðræður

Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna, fundaði með Kirill Dmitriev, einum helsta ráðgjafa Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, í Miami á Flórída í gær. Witkoff sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að fundur þeirra hefði verið árangursríkur og uppbyggilegur liður í því að miðla málum og koma á friðarsamkomulagi milli Rússlands og Úkraínu.Fundur þeirra Witkoffs og Dmitrievs var haldinn degi áður en næstu þríhliða viðræður milli Bandaríkjanna, Rússlands og Úkraínu voru ráðgerðar. Fyrstu þríhliða viðræður ríkjanna fóru fram í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir rúmri viku. Ráðgert var að viðræðurnar myndu halda áfram 1. febrúar í Abu Dhabi.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í gær að samninganefnd Úkraínu biði enn eftir boði í næstu þríhliða viðræður milli Úkraínu, R
Dmitriev og Witkoff funduðu degi fyrir ráðgerðar þríhliða viðræður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta