Sheikh Mohammed bin Abdulrahman Al-Thani, utanríkisráðherra Katar.AP ImagesUtanríkisráðherra Katar, Sheikh Mohammed bin Abdulrahman Al-Thani, átti fund með Ali Larijani, formanni þjóðaröryggisráðs Írans, í dag til að reyna að draga úr spennunni sem upp er komin milli Íran og Bandaríkjanna.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað árásum á Íran skrifi stjórnvöld þar ekki að samningi um kjarnorkusamning fljótlega. Floti herskipa er kominn til Persaflóa og er samkvæmt Trump tilbúinn til að framfylgja skipunum með hraði og af hörku ef Íran samþykkir ekki samninginn.