Hilmar Gunnarsson er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, eftir niðurstöður úr prófkjöri flokksins sem kynntar voru fyrr í kvöld. Hilmar hlaut yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, 91,9% atkvæða í fyrsta sæti eða 799 atkvæði.Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, fékk 499 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 57,4% atkvæða. Alls gáfu þrettán kost á sér í prófkjörinu.Niðurstöður í átta efstu sætum voru eftirfarandi: * Í 3. sæti er Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari með 300 atkvæði í 1. – 3. sæti eða 34,5% atkvæða. * Í 4. sæti er Hjörtur Örn Arnarson landfræðingur með 487 atkvæði í 1. – 4. sæti eða 56% atkvæða. * Í 5. sæti er Þórarinn Örn Andrésson framkvæmdastjóri með 357 atkvæði í 1. – 5. sæti eða 41,1% atkvæða. * Í 6. sæti er Ásgeir Sveinsson bæjarfulltrúi og framkv