Stjórnvöld í Íran hefja á morgun heræfingar sem eru svar við hótunum Trumps Bandaríkjaforseta sem hefur stefnt flota Bandaríkjahers að Íran til að þrýsta á klerkastjórnina að skrifa undir kjarnorkusamning.„Eins og er þurfum við utanaðkomandi hjálp því íslamistarnir myrða fólkið og fjöldinn er hræðilegur. Við þurfum alþjóðlega hjálp. Alvöru aðstoð,“ segir Samira Hosseini, sem tók þátt í samstöðufundi með Írönum í Reykjavík í dag.Matthias Khatibi segir að Íranir geti ekki sigrað klerkastjórnina án hernaðaraðstoðar að utan. „Ég get fullyrt að flestir Íranir bíða eftir þessari hernaðaraðstoð,“ segir hann.„Íranska þjóðin styður árásir Bandaríkjanna á þessi stjórnvöld og yfirtöku þeirra,“ sagði Írani á samstöðufundinum í dag. „Við bíðum eftir því. Meirihluti fólksins bíður.“