Þögul ganga var haldin í Kaupmannahöfn í dag í mótmælaskyni við orð Trumps Bandaríkjaforseta á dögunum sem þóttu gera lítið úr framlagi hermanna NATO-ríkja sem börðust við hlið Bandaríkjahers í Afganistan.44 danskir hermenn féllu þar. Gangan var þögul og átti það að vera táknrænt því Danir ættu ekki orð yfir ummæli Trumps.„Fyrir mér þá þýðir þetta að við berum virðingu fyrir föllnum félögum og við minnumst þeirra og kærum okkur ekki um, afsakaðu orðbragðið, að pissað sé á okkur af Bandaríkjaforseta, sem virðir okkur ekki; slíkt ætti ekki að heyrast. Hann á að skammast sín,“ sagði Dennis, sem barðist í Írak og mætti í gönguna í Kaupmannahöfn í dag.