Amelía er uppreisnargjörn stelpa og persóna í breska tölvuleiknum Pathways.Leikurinn var hannaður af breskum stjórnvöldum til að vera forvörn gegn öfgahyggju, til dæmis varðandi innflytjendamál.Tilgangurinn er að nemendur í breskum skólum læri um hætturnar sem geta stafað af öfgahyggju.Í leiknum er Amelía á móti innflytjendum og reynir að fá samnemendur sína til að ganga í samtök, sem ýta undir andúð á innflytjendum.Nú hafa öfgahópar nýtt sér persónu Amelíu til þess að koma á framfæri öfgafullum skoðunum um innflytjendur á samfélagsmiðlum. NÝTA SAMFÉLAGSMIÐLA OG GERVIGREIND Hópar sem aðhyllast hægri-öfgahyggjur hafa undanfarið notað persónu Amelíu til að koma skilaboðum sínum á framfæri.Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins X, er einn þeirra sem hefur deilt færslu um Amelíu. Notendur X