„Nú erum við komin heim. Það eru blendnar tilfinningar að vera komin í salinn okkar og taka á móti íbúunum,“ segir Margrét Magnúsdóttir, ein nefndarmanna.og skilaboðin eru skýr - þorrablótsgestir eru boðnir velkomnir heim. „Að vera hér er eitthvað sem tengir okkur saman. Íbúarnir eru á víð og dreif um landið,“ segir hún.„Við settum alveg spurningarmerki þegar við fórum af stað með það að vera heima. Hvaða tölu myndum við sætta okkur við. En það væri kannski eðlilegt að einhverjir myndu veigra sér við að koma eða það eru öðruvísi aðstæður eða eitthvað slíkt. En svo var ekki.“