Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

75 ár síðan Glitfaxi fórst með 20 manns innanborðs: Eitt mannskæðasta flugslys á Íslandi

75 ár eru í dag liðin frá einu mannskæðasta flugslysi Íslandssögunnar þegar Glitfaxi fórst með 20 manns innanborðs á leið sinni frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Flak vélarinnar hefur enn ekki fundist. Talið er að það liggi á hafsbotni suður af Álftanesi.Síðdegis 31. janúar árið 1951 fórst Glitfaxi, vél Flugfélags Íslands, með 17 farþega innanborðs, - 15 karlmenn, eina konu og ungabarn hennar, og þriggja manna áhöfn, tvo unga flugmenn og eina flugfreyju.Víðtæk leit hófst strax út frá Álftanesi, á hafinu og meðfram strandlengjunni til Keflavíkur. Leitað var um allan Faxaflóa, án árangurs. Björgunarvesti fannst við Vatnsleysuströnd, þá fannst poki með barnasængurfötum ásamt braki á haffletinum suðurvestur af Álftanesi. Brakið reyndist fjöl úr gólfi vélarinnar. Heyrnartól úr Glitfaxa fundus
75 ár síðan Glitfaxi fórst með 20 manns innanborðs: Eitt mannskæðasta flugslys á Íslandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta