Í einhver ár áður en Vökudeildin var opnuð var herbergi inn af kvennadeildinni þar sem hægt var að setja börn í hitakassa og gefa þeim súrefni. Þá voru einnig gerð blóðskipti á nýburum vegna blóðflokkamisræmis móður og barns. Önnur meðferð var ekki í boði.