Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vilja færa vindvirkjun á Hólaheiði í nýtingarflokk

Sveitarstjórnarfólk í Norðurþingi hefur samþykkt að mæla fyrir því að vindorkuverið Hnotasteinn á Hólaheiði verði fært úr biðflokki rammaáætlunar í nýtingarflokk. Fulltrúar minnihlutans mótmæla og segja pólitíska skammsýni ekki mega bitna á faglegu ferli.Tillaga um byggingu vindorkuvers á Hólaheiði hefur verið til umræðu í nokkur ár. Sunnarlega á Melrakkasléttu, suðaustan við Kópasker, vill fyrirtækið Qair Iceland framleiða allt að 190 megavött af raforku með 34 vindmyllum, um 150 metra háum mannvirkjum.Umhverfismat og rannsóknir standa yfir og verkefnið er í biðflokki í rammaáætlun stjórnvalda. Því vilja sjö sveitarstjórnarfulltrúar; Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Samfylkingar breyta - og færa verkefnið í nýtingarflokk. Það myndi færa virkjunina ofar á blað hjá stjórnvöldum,
Vilja færa vindvirkjun á Hólaheiði í nýtingarflokk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta